Í lýsingu áfangans hefur verið notast við orðalagið „fólk með fötlun“ en hluti af námsefninu er að kynnast orðræðunni í umfjöllun um fötlun. Fjallað verður um líf, aðstæður og reynslu fólks með fötlun með áherslu á daglegt líf s.s. fjölskyldulíf, menntun, atvinnu og búsetu. Einnig verður fjallað um ímynd og hlutverk fólks með fötlun í dægurmenningu s.s. fjölmiðlum, bókmenntum og almennri orðræðu. Mikil áhersla er lögð á að nemendur auki skilning sinn á því hvernig það er að vera fatlaður í íslensku samfélagi.
INNF1IF05 eða sambærilegur inngangsáfangi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þeirri sögulegu þróun sem orðið hefur í málefnum fólks með fötlun
aðstæðum og reynslu fólks með fötlun s.s. daglegu lífi, fjölskyldulífi, menntun, atvinnu og búsetu
hvernig ímynd og hlutverk fólks með fötlun er í dægurmenningu s.s. fjölmiðlum, bókmenntum og í almennri orðræðu
hugmyndum og kenningum um fötlun
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina hvaða áhrif hugmyndir og kenningar um fötlun hafa á aðstæður fólks með fötlun
beita hugtökum á mismunandi viðfangsefni sem tengjast fötlun
beita rannsóknaraðferðum á mismunandi viðfangsefni sem tengjast fötlun
taka fræðilega afstöðu til samfélagslegra álitamála sem tengjast fötlun
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meta ákveðna tegund úrræða fyrir fólk með fötlun út frá mismunandi kenningarlegum sjónarhornum
geta leitað sjálfstætt eftir ákveðnum upplýsingum um málefni tengd fötlun