Í þessum áfanga er fjallað um stöðu kynjanna víðsvegar um heiminn í nútíð og fortíð. Atriði sem geta verið tekin til umfjöllunar eru: völd og virðing kynjanna í ýmsum löndum, hlutverk kynjanna í stríði/átökum, fæðingarorlof, menntun kynja, konur í áhrifastöðum, mansal, samkynhneigð, jafnréttisbarátta og kynin á vinnumarkaði. Lögð er áhersla á umræður og lýðræðislega nálgun í kennslunni. Nemendur eru hvattir til að taka mikinn þátt og hafa áhrif á efnisþætti áfangans. Áfanginn byggir á virkni og þátttöku nemenda þar sem reynir sjálfstæð vinnubrögð jafnt í öflun efnis og miðlun þess.
KYNJ2KY05 - eða 5 einingar í kynjafræði á öðru þrepi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
birtingarmyndum kynjaskekkju frá alþjóðlegu sjónarhorni
kynjakerfi í mismunandi samfélögum
stöðu kynjanna í nútíð og fortíð
sögu kynjabaráttu
helstu persónum og hópum sem koma við sögu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
meta jafnrétti útfrá menningarlegum gildum samfélagsins
rýna í menningu og áttað sig á stöðu kynjanna eins og hún birtist þar
afla sér heimilda á viðurkenndan hátt
nýta fræðilegt efni jafnt á íslensku sem erlendum tungumálum
nota fræðilegar heimildir á sjálfstæðan hátt
nýta viðurkenndar heimildir til að miðla efni á fjölbreyttan hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tengja menningu samfélagsins, gildi og verðmæti við eigið líf
ígrunda viðhorf sín
setja sig í spor annarra
dýpka skilning á samfélaginu sem hann býr í
setja fram fræðilegt verkefni byggt á sjálfstæðri heimildarvinnu
Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.