Í áfanganum munu nemendur kynna sér einkenni mismunandi tegunda ritverka svo sem sagna, ljóða, greina o.fl. Lesin verða lýsandi dæmi um slík verk en aðaláhersla verður lögð á að nemendur semji eigin verk undir leiðsögn kennara, lagfæri og betrumbæti þau skv. ábendingum og skili þeim af sér fullbúnum. Áhersla er á sköpun nemenda en einnig á tæknileg atriði í frágangi ritsmíða og vandað málfar.
ÍSLE2BR05 og ÍSLE2MG05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
einkennum mismunandi tegunda ritsmíða
hvernig ná má fram ólíkum blæbrigðum/hughrifum í ritsmíðum
helstu hefðum og venjum í ljóðagerð, jafnt hefðbundinni sem óbundinni
hlutverki höfundar í ritverkum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
semja og rita eigin texta; sögur, ljóð, greinar eða hvaðeina sem hugur hans stendur til
nota fjölbreytt og vandað mál við ritsmíðar
velja sér málsnið og stíl í samræmi við viðfangsefni/form
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meta trúverðugleika og gæði ritsmíða
greina og upplifa ólík hughrif í skáldskap
mynda sér skoðun á ætlan höfunda ritverka
Námsmat er byggt á leiðsagnarmati þar sem vinna nemandans er metin jafnóðum allan námstímann.