Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1465988589.95

    Fornámsáfangi í stærðfræði
    STÆR1FO05
    104
    stærðfræði
    fornámsáfangi
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Fjallað er um nokkrar grundvallarhugtök og reglur stærðfræðinnar; liði og þætti, ólíkar gerðir talna, reikniaðgerðirnar fjórar, forgangsröð aðgerða, almenn brot, undirstöðuaðgerðir algebru, jöfnur, hlutfallareikning og prósentur.
    Grunnskólapróf
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu grunvallarhugtökum stærðfræðinnar og beitingu þeirra við lausn dæmaþrauta
    • helstu reiknireglum við forgangsröð aðgerða, almenn brot, algebru, jöfnur, veldi og rætur, hnitareikning og prósentur
    • helstu formúlum sem beita þarf til lausnar á dæmum sem falla undir námsefnið
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita helstu grundvallarreglum stærðfræðinnar
    • skilja samhengi talna og algebru, liða og þátta
    • leita lausna á dæmum á skipulegan hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrá lausnir sínar og vinna á skipulegan hátt
    • fylgja fyrirmælum sem gefin eru
    • lesa úr stærðfræðilegum upplýsingum
    Í áfanganum er gert ráð fyrir leiðsagnarmati sem byggir á því að nemandinn fái með reglulegum og skipulegum hætti upplýsingar um hvernig hann stendur í náminu.