Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1465990736.79

    Þátttaka í leiksýningu
    LEIK1LH05
    21
    leiklist
    þátttaka í uppsetningu leiksýningar
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Þátttaka í uppsetningu leiksýningar í samvinnu leikhóps. Nemendur kynnast öllu ferlinu við undirbúning sýningar, taka að sér hlutverk eða vinna við aðra þætti, s.s. tónlistarvinnu eða útlitshönnun sýningar. Nemandinn fær markvissa þjálfun og tilsögn í ferlinu. Æfingatímabil verður 6-8 vikur og sýningar í kjölfar þess.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mismundandi störfum innan leikhússins
    • mismundandi störfum innan leikhússins
    • því verkferli sem viðkomandi er hluti af í sýningunni
    • því sem þarf til að leiksýning verði frambærileg
    • mikilvægi jákvæðra samskipta
    • menningarlegu hlutverki sviðslista
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • leita lausna og sýna frumkvæði
    • vinna náið með öðrum á uppbyggilegan hátt
    • finna til ábyrgðar á viðfangsefnum
    • nýta þau verkfæri sem nauðsynleg eru
    • tjá sig fyrir framan hóp
    • segja skoðanir sínar á hreinskiptinn hátt
    • beita virkri hlustun
    • taka við fyrirmælum og fara eftir þeim
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • axla ábyrgð á því hlutverki sem hann hefur tekið að sér
    • sýna sjálfsaga og vönduð vinnubrögð
    • vinna með öðrum á jákvæðan og skapandi hátt
    • geta sett sig í spor annarra
    • rökræða og komast að niðurstöðu
    Ástundun og frammistaða er metin að lokum. Beitt er leiðsagnarmati þannig að nemandinn sé fullviss um hvert stefnir og honum gert ljóst hvernig beri að taka nýtt skref sem skili honum fram á við.