Í áfanganum kynnast nemendur grundvallaratriðum margmiðlunar og upptöku bæði á mynd og hljóði. Aðal áhersla er lögð á skapandi vinnu í verkefnum sem krefjast persónulegrar nálgunar. Markmið áfangans er að nemendur nýti kunnáttu sína í margmiðlun til að vinna sjálfstæð verkefni undir leiðsögn kennara. Áhersla er lögð á að undirbúa upptöku, tímaramma og umhverfi við upptöku á hljóði og jafnframt sjónarhorn og lýsingu við upptöku á mynd. Nemendur kynnast þeim möguleikum sem fólgnir eru í að endurraða fyrirliggjandi efni með klippingu og vinna með klippiforrit á eigin efni, en gera jafnframt fjölbreyttar tilraunir með fundið efni, t.d. af netinu. Áfanganum lýkur með sjálfstæðu verki þar sem nemendur velja sér efnivið og miðil sem hentar hugmyndum þeirra og áhugasviði.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
upptökutækjum, klippiforritum og stafrænum miðlum fyrir myndband og hljóð
vinnuferli við gerð myndbands og hljóðverka
tímanum sem lykilþætti í myndbands- og hljóðverki
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skipuleggja, taka upp og klippa myndbandsverk og ganga frá til sýningar í viðeigandi forriti
skipuleggja, taka upp og klippa umhverfishljóð og vinna svo úr verði sjálfstætt hljóðverk
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta sér stafræna miðla með skapandi og persónulegum hætti
undirbúa og gera stutt myndband þar sem hljóð og mynd eru hugsuð sem heild
vinna með hljóð sem hluta af myndbandi en líka sem sjálfstætt verk
Námsmat útfært í kennsluáætlun samkvæmt skólanámsskrá.