Í þessum áfanga er áhersla lögð á að nemendur útbúi fjölbreytta, einfalda og holla skyndibita. Áhersla er lögð á að vekja nemendur til umhugsunar um hollustu, samsetningu fæðutegunda og fæðuhringinn. Nemendur þjálfist í verklagi í eldhúsi.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi hollrar næringar og fjölbreyttu fæðuvali
fæðuhringnum og samsetningu fæðunnar
að þekkja hollt hráefni
viðeigandi verklagi við matargerð
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
velja hollt hráefni miðað við fæðuhring
meðhöndla mismunandi hráefni
sýna verklega færni
gæta hreinlætis við matargerð
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
setja saman og útbúa fjölbreytta, einfalda og holla skyndibita úr mismunandi hráefni
sýna sjálfstæði í vinnubrögðum
sýna góða umgengni og hreinlæti við matargerð
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.