Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1466432861.19

    Samfélagsfræði
    LÍFS1FÉ03(ST)
    41
    lífsleikni
    Samfélagsfræði
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    ST
    Í áfanganum er fjallað um samtímann út frá málefnum líðandi stundar og hvaða áhrif þau hafa á einstaklinginn í samfélaginu. Megin markmið áfangans er að nemendur fái innsýn í áhrifamátt atburða líðandi stundar á samfélagið og einstaklinginn.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • leiðum til að geta aflað sér upplýsinga um málefni líðandi stundar
    • mikilvægi upplýstrar umræðu og skoðanaskipta
    • algengustu hugtökum samfélagsumræðunnar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita gagnrýnni hugsun um málefni líðandi stundar
    • skoða áhrif atburða á einstaklinginn og samfélagið
    • tjá sig um málefni líðandi stundar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • meta upplýsingar um samfélagsleg málefni líðandi stundar
    • taka þátt í umræðum
    • mynda sér skoðanir
    • meta áhrifamátt samfélagslegrar umræðu
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.