Áhersla er á lýðræði og mannréttindi. Farið verður í hugtökin lýðræði, jafnrétti og mannréttindi og hvernig þessi hugtök birtast í samfélagi nútímans hjá fólki með fötlun. Sérstök áhersla verður lögð á valdeflingu (empowerment). Fjallað er um réttindagæslu fatlaðra og hvernig hún nýtist nemendum. Fjallað er sérstaklega um samning Sameinuðu Þjóðanna um málefni fólks með fötlun.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
lýðræði og hvað það felur í sér
jafnrétti og hvað það felur í sér
mannréttindum og hvað það felur í sér
réttindagæslu og hvað hún felur í sér
hvaða réttindagæslumaður er á svæði nemandans
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
átta sig á birtingarmyndum lýðræðis fyrir sig sem einstakling
átta sig á birtingarmyndum jafnréttis fyrir sig sem einstakling
átta sig á birtingarmyndum mannréttinda fyrir sig sem einstakling
átta sig á hvað valdefling þýðir fyrir einstaklinginn
leita eftir aðstoð réttindagæslumanns
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta metið eigin stöðu í samfélaginu út frá mannréttindum, lýðræði og jafnrétti
taka afstöðu til málefna sem varða fólk með fötlun í samfélaginu
meta hvenær um misrétti er að ræða á milli fatlaðra og ófatlaðra
vita við hvaða aðstæður þarf að leita aðstoðar réttindagæslumanns á sínu svæði
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.