Í áfanganum er unnið með stöðu kvenna og karla í nútímasamfélagi og hvernig samfélagið flokkar og raðar niður fólki eftir kyni. Fjallað verður um jafnréttisbaráttuna og jafnrétti í tengslum við mismun kynjanna, samskipti, sjálfsmynd og sjálfsvitund. Nemendur þjálfist í að greina samfélagið með kynjagleraugum og að rýna í fjölmiðla og dægurmenningu
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
jafnréttisbaráttunni og áhrifum hennar
mikilvægi jafnréttis milli kynja
helstu hugtökum kynjafræðinnar
kynbundnu ofbeldi og afleiðingum þess
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
afla upplýsinga um jafnréttismál
taka þátt í umræðum um algeng álitamál sem tilheyra kynjafræðinni
greina stöðu og staðalmyndir kynjanna á sviðum samfélagsins
beita feminísku viðhorfi til að greina staðalmyndir og kynjaskekkju
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
taka ábyrga afstöðu til jafnréttismála
taka þátt í umræðum um jafnrétti á sjálfstæðan og rökréttan hátt
greina áhrif kynferðis á líf sitt og jafnframt gera sér grein fyrir hvernig hann getur hagnýtt sterkar hliðar sínar á skapandi hátt óháð kyni
að verða sér meðvitaður um réttindi sín hvað varðar jafnréttismál
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.