Áfanganum er ætlað að efla vitund nemenda um sögu lands og þjóðar og hvernig sagan hefur mótað samfélag nútímans. Í áfanganum er áhersla lögð á að skoða ákveðna þætti Íslandssögunnar frá lokum sautjándu aldar fram að stofnun lýðveldissins. Lögð er áhersla á atburði, einstaklinga og náttúrufar sem mótuðu söguna á þessu tímabili.
Lögð verður áhersla á að nýta upplýsingatækni og margmiðlunarefni til heimildaöflunar og verkefnavinnu.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þeim atburðum sem fjallað er um og þýðingu þeirra í sögu landsins
sögulegri þróun tímabilsins og þeim viðburðum sem fjallað er um
hvernig þróunin mótar samfélag nútímans
hugtökum tengdum efninu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
aflað sér heimilda um viðfangsefnið
nýta þekkingu sína til frekari þekkingarleitar
nota leitarvefi í upplýsingaleit
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
taka þátt í umræðum um íslenska sögu og einstaka atburði
tengja þekkingu sína á viðfangsefninu við samfélag nútímans
tengja þekkingu sína á viðfangsefninu við leik og störf í daglegu lífi
átta sig á tengslum sögunnar við mótun samfélagsins
sýna sjálfstæði í vinnubrögðum
leita frekari þekkingar á viðfangsefninu
koma þekkingu á framfæri með fjölbreyttum hætti
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.