Í þessum áfanga er viðfangsefnið bakstur. Nemendur baka ýmis konar brauð og kökur. Lögð er áhersla á að nemendur þjálfist í að fara eftir uppskrift, meðhöndlun áhalda, vinnubrögðum í bakstri, frágangi og hreinlæti.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi handþvottar
heiti helstu áhalda
notagildi uppskrifta og helstu skammstöfunum varðandi magn
helstu vinnubrögðum við bakstur
helstu vinnubrögðum varðandi frágang og uppvask
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
gæta hreinlætis
nota helstu áhöld
fylgja uppskrift
baka
ganga frá og vaska upp
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
fara eftir almennum hreinlætiskröfum
nota viðeigandi áhöld við bakstur á sem sjálfstæðastan hátt
nýta sér uppskriftir
hafa ánægju af bakstri
sýna góða umgengni við eldhússtörf
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.