Í áfanganum er fjallað um reglur sem gilda um móttökueftirlit, flokkun á vörum eftir ástandi þeirra og umbúðamerkingum. Einnig þær reglur sem gilda um matvælaöryggi, gæða og heilbrigðismat.
Fjallað er um meðferð á íslenskum salt- og ferskvatnsfiski, skelfiski og lin- og krabbadýrum. Nemendur læra um sláturafurðir, uppbyggingu vöðva og nýtingu, meyrnun, meyrnunartíma, hlutun og hagnýtingu. Fjallað er um heilbrigðismat og gæðaflokkun kjöts og alifugla. Ennfremur sölu og dreifingu á íslenskri villibráð. Nemendur læra um íslenskar kryddjurtir og grænmeti, kornmeti og algengar tegundir ávaxta, flokkun þeirra, einkenni og notkun. Einnig helstu geymsluaðferðir og takmarkanir sem gilda um geymslu kjöts, fisks, grænmetis og ávaxta.
Enginn
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
reglum sem gilda um móttökueftirlit og matvælaöryggi
reglum sem gilda um gæða og heilbrigðismat
íslenskum og erlendum sláturafurðum og villibráð
helstu tegundum af íslenskum og erlendum skelfiski ásamt íslenskum og erlendum bol- og flat¬fiski
algengum íslenskum og erlendar grænmetistegundum
notkun á algengum kryddjurtum og kryddi
algengum korntegundum með tilliti til notkunar
flokkum allra algengra ávaxtategunda
notkun á helstu tegundum af dýra- og jurtafeiti
öllum helstu geymsluaðferðum og þekkja takmarkanir sem gilda um geymslu kjöts, fisks, grænmetis og ávaxta
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
flokka vörur eftir ástandi þeirra og umbúðamerkingum
forgangsraða verkefnum og sýna sjálfstæði og frumkvæði í vinnu sinni
lesa texta sem inniheldur faglegar upplýsingar, vinna úr þeim á ábyrgan hátt og kynna niðurstöður sínar
skrifa styttri texta um fagleg efni og færa rök fyrir mál sínu bæði munnlega og skriflega
afla hagnýtra upplýsinga og greina á milli áreiðanleika þeirra og fræðilegs gildis
nýta heimildir sem skýra eigin röksemdafærslu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
taka á móti vörum, flokka þær og ganga frá á viðeigandi hátt
bregðast við frávikum
vinna með allt hráefni til matargerðar og þekkja nýtingarmöguleika þess
meta gæði vinnu sinnar með skapandi og gagnrýnni hugsun