Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1471786278.4

    Húsaviðgerðir og breytingar
    HÚSV3HU05(FB)
    3
    Húsaviðgerðir og breytingar
    Húsaviðgerðir og breytingar
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    FB
    Í áfanganum er fjallað um viðgerðir og breytingar á eldri byggingum og mannvirkjum úr tré og steini. Lögð er áhersla á mikilvægi þess að varðveita byggingarsögulegt gildi húsa á sama tíma og reynt er að koma til móts við kröfur nútímans um endingu, þægindi og brunavarnir með hliðsjón af lögum og reglum. Farið er yfir greiningu á fúa- og steypuskemmdum, endurnýjun á burðarvirkjum, klæðningum, gluggum, hurðum og öðrum byggingarhlutum. Jafnframt lærir nemandinn um algenga breytingavinnu svo sem endurnýjun á gleri, smíði viðbygginga eins og glerskála, breytingar á þökum s.s. smíði þakkvista. Kennslan er aðallega bókleg en einnig verkleg þar sem við á. Lögð er áhersla á minni verkefni og sýnikennslu. Áfanginn er ætlaður verðandi húsasmiðum.
    Áfanginn: Timburhús 2 Þakvirki, útveggjaklæðningar, HÚSA3ÞÚ09
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • lögum og reglugerðum um húsafriðun og breytingar á húsum
    • endurnýjun burðavirkja
    • endurnýjun og viðhaldi á mannvirkjum
    • öryggi og öryggisbúnaði við viðgerða- og breytingavinnu
    • byggingarsögu tré- og steinhúsa á Íslandi
    • notkun bárujárns í klæðningar hérlendis
    • mismunandi eiginleikum efna til klæðninga utanhúss þ.m.t. bárujárn
    • byggingarsögulegu gildi húsa og mannvirkja
    • mikilvægi brunavarna við viðgerðir og endurnýjun
    • reglum um öryggi og öryggisbúnað við viðgerða- og breytingavinnu
    • skemmdum af völdum sveppa og skordýra í tréverki
    • orsökum og afleiðingum tæringar og veðrunar á málmum
    • notkun bárujárns í klæðningar hérlendis
    • eiginleikum og notkunarsviði bárujárns sem klæðningarefnis
    • uppbyggingu bárujárnsklæðninga og festingum
    • frágangi bárujárns við mismunandi byggingarhluta
    • málun og viðhaldi bárujárnsklæðninga
    • nýsmíði við eldri hús og endurnýjun á gleri
    • smíði glerskála, svala, kvista, sólpalla og skjólveggja við eldri hús
    • endurnýjun á gleri og útfærslur á glerjun hallandi byggingarhluta
    • mismunandi hurðakerfum í glerskálum og glervirkjum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • greina algengustu skemmdir á tré, steinsteypu og málmi utanhúss
    • gera við trévirki án þess að rýra burðargetu þess
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • greina steypuskemmdir og meta umfang þeirra í grófum dráttum
    • framkvæma tæknilegar útfærslur á tengingu eldri og nýrra byggingarhluta
    • leggja mat á afleiðingar mismunandi lausna fyrir varðveislugildi mannvirkja
    Mælt er með því að námsmat í áfanganum byggist á símati.