Áfanginn fjallar um tónlist, um hljóð, hrynjanda, laglínu og samhljóm, sem þroskandi og uppbyggjandi þátt í lífinu fyrir einstaklinginn og hópinn í heild. Einstaklingurinn þjálfast í að hlusta á og heyra mismunandi tegundir tónlistar og að velja þau lög sem honum líkar. Markmið áfangans er að aðstoða nemandann við að finna tónlist sem honum líkar.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvernig tónlist hentar hópnum best
uppbyggingu laga
samspili og samvinnu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
samspili á útvöldum lögum
hlusta og heyra tónlist
samvinnu innan hópsins
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
spila valin lög með hópnum
standa að tónleikum þar sem hann miðlar listrænum styrk sínum
samvinnu svo allir í hópnum nýti hæfileika sína til hins ítrasta
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina.