Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1472738520.24

    Upplýsingatækni 1 - sérnámsbraut
    ULTS1GR02
    1
    Upplýsingatækni - sérnámsbraut
    Grunnur
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Í áfanganum fá nemendur kynningu á notkunarmöguleikum tölvunnar og fræðast um örugga netnotkun og óskrifaðar og skrifaðar reglur á samskiptavefjum og bloggsvæðum.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Að tölvur eru stór hluti af lífi okkar.
    • Mikilvægi þess að fylgja ákveðnum umgengisreglum við tölvunotkun.
    • Mikilvægi þess að vanda tölvusamskipti eins og önnur samskipti.
    • Því að það er ekki allt satt og rétt sem sett er á veraldarvefinn.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Greina á milli þess hversu áreiðanlegar upplýsingar eru á netinu.
    • Nýta sér netið á öruggan og ánægjulegan hátt.
    • Nota samskiptavefi á borð við facebook á sem öruggastan hátt.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Lesa í leik-og samskiptareglur.
    • Lesa í og/eða nýta sér upplýsingar sem koma fram á síðum eins og SAFT og öðrum síðum sem kenna örugga netnotkun.
    • Auka sjálfstraust sitt og trú á eigin tölvulæsi.
    • Lesa í umhverfi, samskipti, tilfinningar og reglur í þeim tilgangi að átta sig á hvað er viðeigandi hverju sinni.
    • Þekkja muninn á því sem er raunverulegt og óraunverulegt.
    Leiðsagnarmat, virkni í kennslustundum og mæting. Regluleg endurgjöf er frá kennara á vinnuframlag nemenda og verkefnaskil.