Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1473325137.03

    Ég og lífið 2 - sérnámsbraut
    HHLS1LB04
    8
    Samþættur áfangi, heilbrigðisfr. heimilisfr. lífsleikni - sérnámsbraut
    Líkamsmynd, félagsfærni
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    Áfanginn er samþættur þar sem flétt er saman helstu markmiðum úr lífsleikni, heilbrigðisfræði og heimilisfræði. Sem dæmi um viðfangsefni er sjálfsmynd og sjálfsvitund, lýðheilsa, kynfræðsla og heimilið.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi réttrar sjálfsmyndar og sjálfsvitundar
    • mikilvægi þess að vera sáttur við sjálfan sig
    • samfélagslegum gildum, siðfræðum, mannréttindum og jafnrétti
    • verklagi við heimilisstörf
    • samhengi gjalda og tekna við rekstur heimilis
    • mikilvægi hollustu og hreyfingar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • eiga góð samskipti við mismunandi einstaklinga í mismunandi aðstæðum
    • bera ábyrgð á eigin velferð, líkamlegri og andlegri
    • vera verklega sjálfbjarga í daglegu lífi
    • framkvæma flest heimilisverk sem gerð eru á hverju heimili
    • mikilvægi í hagkvæmni í innkaupum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Þekkja eigin sjálfsmynd og vera sáttur við hana
    • vera umburðarlyndur gagnvart mismunandi einstaklingum
    • lifa hollu og heilsusamlegu lífi með tilliti til mataræðis og hreyfingar
    • taka ábyrga afstöðu til eigin velferðar, líkamlegrar og andlegrar
    • öðlast þekkingu og færni í framkvæmd heimilisverka
    • öðlast þekkingu og færni í framkvæmd heimilisverka og hvað þarf að hafa í huga þegar stofna á heimili
    • geyma og meðhöndla matvæli á öruggan hátt