Markmið áfangans er að nemandi geti sett upp og haft umsjón með tölvuumhverfi í litlu fyrirtæki, þekki helstu íhluti staðar- og víðneta t.d. Switch, Hub og router ásamt að skilja tilgang þeirra og virkni í megindráttum. Kynning á hugtökunum staðarnet, LAN, og víðnet, WAN, hlutverk þeirra og tilgang þekki mismunandi nethögun (Topology) tölvulagna. Nemendur búa til netsnúrur og læra mismuninn á notkun beinna og krossaðra tengisnúra við tengingu mismunandi netíhluta. Farið er í IP–vistföng, (IP address, Subnetmask, Default gateway, Nameserver) og muninn á notkun MAC-vistfangs og IP-vistfangs. Nemendur tengja útstöð við staðarnetið og setja upp allar víðnetsstillingar. Notaðar eru einfaldar aðferðir til að rekja bilanir á netsamböndum (ping, ipconfig, tracert o.fl.)
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hugtökunum staðarnet, LAN, og víðnet, WAN
mismunandi nethögun (Topology) og tölvulögnum
IP–vistföng, (IP address, Subnetmask, Default gateway, Nameserver) og muninn á notkun MAC-vistfangs og IP-vistfangs
stigskiptingu netkerfis
notkun beinna og krossaðra tengisnúra við tengingu mismunandi netíhluta.
einföldum aðferðum til að rekja bilanir á netsamböndum (ping, ipconfig, tracert o.fl
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
að tengja útstöð við staðarnetið og setja upp allar víðnetsstillingar
að búa til nettengisnúrur bæði beinar og krossaðar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
setja upp og hafa umsjón með tölvuumhverfi í litlu fyrirtæki
að taka MCA próf nr:98- 366 hjá viðurkenndri prófamiðstöð
Lögð verður áhersla á fjölbreytt námsmat. Metin verða verkefni af ýmsu tagi sem nemendur leysa í kennslustundum og/eða heima.