Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1474561038.3

    Þýska 4 fyrir grunn notanda - d
    ÞÝSK2BG05
    11
    þýska
    evrópski tungumálaramminn, framhald, stig a2
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    BA
    Byggt er markvisst á þeirri kunnáttu sem nemendur hafa nú þegar tileinkað sér í samræmi við þrep A2 í evrópska tungumálarammanum. Unnið er að frekari færni nemenda í lesskilningi, tali, hlustun og ritun. Orðaforði eykst og ný málfræðiatriði eru æfð. Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur séu færir um að skilja allt venjulegt talað og ritað mál almenns eðlis. Nemendur kynnist frekar menningu þýskumælandi landa. Áhersla er lögð á aukinn orðaforða og lesskilning, svo þeir geti tjáð sig af lipurð bæði munnlega og skriflega. Nemendur geti lesið sér til gagns og ánægju og beitt til þess ólíkum lestraraðferðum. Nemendur geri sér ljósa eigin ábyrgð í málanámi og átti sig á mikilvægi eigin frumkvæðis og vinnu. Til þess að þjálfa þessi atriði er meðal annars tekið mið af eftirfarandi: Verslun, matvæli og magnheiti, hátíðir, boð, matur og drykkur. Smáauglýsingar, hús og hýbíli.
    ÞÝSK1AU05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta markmiðum áfangans
    • grundvallarþáttum þýska málkerfisins
    • menningu, samskiptavenjum og siðum þýskumælandi landa og þjóðanna þar sem tungumálið er talað sem móðurmál/fyrsta mál
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • greina talað mál um kunnugleg efni og geta fylgt fyrirmælum og greint aðalatriði frá aukaatriðum
    • lesa og greina margskonar gerðir texta og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni.
    • afla sér hagnýtra upplýsinga og taka þátt í samræðum og tjá sig um ólík umræðuefni.
    • tjá sig um atburði með því að beita nútíð, framtíð og liðinni tíð og halda kynningu á undirbúnu efni með því að beita orðaforða, setningagerð og framburði á sem réttastan hátt.
    • skrifa samfelldan texta um efni ýmiskonar efni, draga ályktanir og tjá eigin skoðanir.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • hlusta á og greina talað mál um um efni sem hann hefur aflað sér þekkingar á sem og eigin skoðanir og persónulega reynslu
    • rökstyðja og bera saman notkun á setningum
    • leggja grunn að samræðum þannig að hann rökstyðji, spyrji og svari spurningum um kunnug málefni
    • draga ályktanir og nota orðasambönd og setningar á sem réttastan hátt til þess að segja frá
    • skipuleggja frásögn og rökstyðja orðaval í mismunandi tegundum texta og geta dregið ályktanir
    • skrifa texta um sjálfan sig og umhverfi sitt eða annað efni sem hann hefur aflað sér þekkingar á
    Fjölbreytt námsmat endurspeglar markmið áfangans í öllum færniþáttum í samræmi við evrópsku tungumálamöppuna (ETM). Lokaeinkunn byggir á kennara-, sjálfs- og jafningjamati á virkni og verkefnaskilum nemenda, þar sem færniþættirnir lesskilningur, hlustun, tal og ritun, auk málfræði eru metnir.