Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1474970061.12

    Handrit og kvikmyndagerð
    ENSK3HK05(SB)
    28
    enska
    Handrit, kvikmyndagerð
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    SB
    Öll kennsla í áfanganum fer fram á ensku og verkefnin eru á ensku. Í áfanganum er þjálfaður enskur orðaforði sem tengist kvikmyndagerð vinnubrögðum við hana. Farið verður í gegnum öll helstu kvikmyndaformin. Teknar eru fyrir nokkrar kvikmyndir, þær rýndar og skilgreindar út frá ýmsum þáttum kvikmyndagerðar. Nemendur þjálfa sig í skrifum á handriti á ensku sem er síðan notað sem grunnur að lokaverkefni.
    ENSK2GA05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • enskum orðaforða sem tengist kvikmyndagerð
    • hvað aðgreinir hin ýmsu kvikmyndaform
    • helstu aðferðum við handritsskrif
    • kenningum og vinnubrögðum sem tengjast handritaskrif og kvikmyndagerð
    • myndmáli kvikmyndanna
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna eftir handriti
    • skrifa handrit á ensku
    • greina táknmál kvikmynda
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • taka upp stuttmynd
    • greina dramatíska uppbyggingu kvikmyndar
    • skrifa eigið handrit á ensku með trúverðugum samtölum og persónum
    Notað verður fjölbreytt námsmat. Dæmi um námsmatsþætti gætu verið: Munnleg og skrifleg verkefni, smápróf, ritun, ástundun og lokaverkefni.