Tónlestur, tónbil og ritun hljóma, laglínu- og hrynferla. Í tónheyrninni er notast við Solfa kerfið. Áhersla er lögð á að efla tónheyrn og færni í að greina hvernig tónbil, laglínur, hljómar og hljómasambönd eru uppbyggð. Námið miðar að því að nemendur hafi vald á að syngja, greina og skrifa niður algeng díatónísk takt-, laglínu- og hljómferli. Tónbil eru innan áttundar, laglínu- og hljómadæmi eru oftast styttri en 4 taktar. Hrynviðfangsefni byggja á tiltölulega algengum áttundapartaferlum
Miðnámspróf í tónfræði eða stöðupróf við skólann
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Laglínusöng með Solfa aðferð og uppbyggingu hljóma.
Hvernig algengar rytmískar hrynhendingar, byggðar að mestu á áttundapartsnótum, eru útfærðar í nótnaskrift.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Nemandi skal hafa öðlast nokkra leikni í tónheyrn m.t.t til ofangreindra atriða, sem dugi til að efla getu hans í samleik og spuna.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Heyra, syngja og rita niður einfaldar díatónískar laglínuhendingar í dúr- og blústónstiga, sem byggðar eru á algengum rytmískum hrynmynstrum.
Greina einföld hljómferli innan tóntegundar.
Hagnýta sér þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur öðlast til að efla samleik og spuna.
Próf í lok áfanga: skriflegt og munnlegt og gildir hvor þáttur 50%.