Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1475753047.4

    Alþjóðaviðskipti
    ALÞV2AV05
    1
    Alþjóðaviðskipti
    Alþjóðaviðskipti
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    BA
    Áfanginn miðar að því að auka skilning nemandans á mikilvægi alþjóðasamskipta á tímum hnattvæðingar. Fjölbreytileiki alþjóðaviðskipta er kynntur og áhersla lögð á að skoða hvernig menning ólíkra þjóða hefur mótað viðskiptastefnu þeirra. Helstu viðskiptalönd Íslendinga kynnt og aukið vægi Asíu markaðar metið í alþjóðaviðskiptum. Starfsemi alþjóðastofnana sem grundvallast á milliríkjasamningum er skoðuð svo og utanríkisstefna Íslendinga og þátttaka í fjölþjóðastarfi.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • Bera kennsl á helstu viðskiptalönd Íslendinga • Bera kennsl á helstu iðnríki heimsins • Bera kennsl á helstu fjölþjóðastofnanir heimsins • Bera kennsl á helstu áhrif hnattvæðingar • Greina margbreytilegar aðstæður ólíkra ríkja • Flokka mikilvægi viðskiptasamninga eftir landfræðilegri legu ríkja
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • Taka þátt í og skipuleggja krefjandi verkefni • Greina undirstöðuatriði alþjóðasamskipta • Tjá sig um viðskiptastefnu Íslendinga • Tjá sig um utanríkisstefnu Íslendinga • Tjá sig um menningarmun þjóða
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • Gagnrýna alþjóðastofnanir • Gagnrýna viðskiptastefnu þjóðar • Rökstyðja mikilvægi alþjóða samvinnu • Greina tækifæri með viðskiptasamningum • Skipuleggja alþjóðasamskipti með netmiðlum • Bera saman menningarstefnur þjóða