Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1475754533.51

    Bókfærsla
    BÓKF2BÓ05
    3
    bókfærsla
    bókfærsla framhaldsáfangi
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    BA
    Í áfanganum er unnið með dagbók og reikningsjöfnuð og nemendur læra að leysa flóknari athugasemdir til færslu í millifærslur. Reikningum fjölgar , vörubirgðir eru reiknaðar frá meðalálagningu, unnið er með verðtryggingu, afföll og viðskipti við útlönd með tollafgreiðslu eru kynnt til sögunnar. Farið er yfir óbeinar afskriftir og aföll skuldabréfa. Uppgjör á rekstri og efnahag.
    BÓKF1BF05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • flokka athugasemdir við niðurstöðu dagbókar (prófjöfnuð) • greina reikninga í efnahags og rekstrarreikninga • setja fram rekstrarreikning og efnahagsreikning • skilja samhengi meðalálagningar og birgðastöðu • þekkja eðli virðisaukaskattskerfis
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • færa flóknar færslur í dagbók • beita hugtökum um meðalálagningu álagningu, afföll, verðtryggingu og óbeinar afskriftir. • gera grein fyrir erlendum viðskiptum og yfirfæra erlendar eignir og skuldir í íslenska mynt • færa launa- og arðgreiðslur í dagbók og reikningsjöfnuð • stilla upp rekstrar- og efnahagsreikning • geta gert upp virðisaukaskatt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • skipuleggja reikninga í dagbók • gera upp einfalt bókhald • leggja mat á rekstur, efnahag og eigið fé gera leiðréttingar á bókhaldi byggðar á flóknum athugasemdum