Í áfanganum eru mismunandi fjölmiðlar skoðaðir á gagnrýninn hátt. Fjallað er um hvernig samskiptatæki fjölmiðlar eru og áhersla er lögð á að gera nemendur meðvitaða um mikilvægi þeirra, gildi og siðgæði og þær hættur sem tengjast fjölmiðlum nútímans.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu tegundum fjölmiðla
hugtakinu tjáningarfrelsi
gildi fjölmiðla í lýðræðissamfélagi
hættum sem tengjast fjölmiðlum nútímans.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nálgast mismunandi fjölmiðla óháð miðlunarformi
draga aðalatriði út úr mismunandi fréttatilkynningum
endursegja eða endurflytja afmarkað efni
nýta sér fjölmiðla sér til gagns og/eða gleði
taka þátt í umræðum og tjá eigin skoðanir.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vera meðvitaður um styrkleika, veikleika og hættur fjölmiðla
tjá sig um ýmis málefni sem fram koma í fjölmiðlum
nýta sér upplýsingar frá fjölmiðlum á gagnrýninn hátt
aðgreina auglýsingar frá öðru sem kemur fram í fjölmiðlum.
Í áfanganum er gert ráð fyrir leiðsagnarmati en í því felst að nemandinn fái með reglulegum og skipulegum hætti upplýsingar um hvernig hann stendur í náminu.