Námskeiðið snýst eingöngu um söng og er framhald af LRS 302 (Söngur 2) þar sem haldið er áfram að þjálfa rödd leikarans og tækni með „Complete Vocal Technique“ aðferðinni. Litið er yfir farinn veg og rifjuð upp helstu tækniatriði . Nemendur setja sér markmið fyrir önnina og velja hvaða sönglög þau vilja vinna með og þróa fyrir lokatónleika undir handleiðslu söngkennara . Auk þess er unnið með leikstjóra/danshöfundi að sviðsetningu fyrir lokatónleikana, sem geta tekið á sig form söngleiks, kabaretts, revíu eða skemmtidagskrár, þar sem þess er gætt að allir fái hlutverk við hæfi.
LERS4RS4
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
CVT tækninni,
getu sinni og hæfileikum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna með rödd sína og söngrödd á persónulegan og faglegan hátt
styrkja kosti sína sem söngvari
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
koma fram sem syngjandi listamaður, þar sem byggt er á tæknilegum og persónulegum grunni
nýta sér raddþjálfunarkerfi til að ná betri árangri sem leikari og listamaður