Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1478688586.39

    Fjarskiptatækni II
    FJST3RE05(BR)
    1
    Fjarskiptatækni
    Fjarskiptatækni
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    BR
    Í þessum áfanga er lögð áhersla á stafræna mótun og stafræna móttöku. Farið er í loftnetskerfi og síun á óæskilegum merkjum (filteringar). Fjallað er um mismunandi tíðnisvið. Lögð er áhersla á að nemendur nái góðum tökum á notkun loftnetsmæla og tíðnirófsgreini bæði fyrir hliðræn merki og stafræn merki. Nemendur læra að hanna einföld loftnetskerfi sem þeir svo setja upp samkvæmt reglum um styrk merkja í loftnetskerfum.
    FJST2RE05AR
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mismun á stafrænni móttöku og hliðrænni.
    • mælieiningum í fjarskiptatækni.
    • hvernig hægt er að sía merki.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • setja upp og tengja stafrænt loftnetskerfi.
    • mæla merkjastyrk með loftnetsmælum.
    • greina krossmótun og yfirmótun í loftnetskerfi.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta sett upp loftnetskerfi og dreifikerfi fyrir stafræna og hliðræna mótun.
    • geta mælt loftnetskerfi og gert bilanagreiningu.
    • meta orsök krossmótunar og yfirmótunar.
    • geta ákvarðað þörf og valið síur fyrir loftnetskerfi.
    • geta mælt og ákvarðað þörf fyrir mögnun, millimögnun og síun í loftnetskerfi.
    Kennsla verkefnastýrð að mestu, námsmat er símat með tvo til þrjá lykilmatsþætti og leiðsagnarmat.