Í áfanganum eru tekin fyrir loftnetskerfi fyrir hærri tíðni og fjallað um mismunandi stafrænar mótunaraðferðir. Kennd er notkun mælitækja til mælinga á boðskiptalögnum með loftnetsmæli og tíðnirófsgreini. Farið er í Catkerfi, ljósleiðarakerfi og stærri loftnetskerfi með millitíðnigreiningu og A/D-umbreytingu með CAT 5-dreifingu á merki í stafrænu formi. Þá er fjallað um efnistöku, verðútreikninga og tilboðsgerð og gerðar mælingaáætlanir og mælingar á loftnetskerfi ásamt skýrslugerð.
FJST3RE05BR
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
uppbyggingu stafrænna loftnetskerfa.
gervihnattamóttöku og meðferð slíkra merkja.
dreifikerfum fyrir stafræn merki.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
setja upp og tengja gervihnattadisk.
setja upp fjölrásakerfi með stafrænni dreifingu.
mæla og greina stafræn og hliðræn merki.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta sett upp gervihnattadisk og stillt hreyfibraut.
geta stillt upp móttökukerfi fyrir gervihnattadisk og hannað og sett upp dreifikerfi.
geta greint merki hvort sem er á CAT kapli, ljósleiðara eða sammiðjukapli.
Áfanginn er sveinsprófsáfangi. Í lok annar leggur sveinsprófsnefnd fram próf sem byggir á námi annarinnar og metur hvort nemandi hafi þá hæfni og leikni sem tiltekin er í hæfniviðmiðum. Kennsla er verkefnastýrð að mestu, námsmat er símat með tvo til þrjá lykilmatsþætti og leiðsagnarmat. Nemandi verður að standast sveinspróf til að áfanganum teljist lokið.