Nemendur læra um ýmiss forritunarmál sem snerta vélaforritun s.s. assembler, basic og C. Uppbygging örgjörva og hvernig þeir tengjast útværum rásum og stýra eða skynja. Nemendur læra um ýmsar gerðir skynjara og stýrirofa og hvernig örtölvur eru notaðar til að vinna ýmiss verkefni. Nemendur leysa verkefni í stýrtækni til að láta vélbúnað vinna ýmiss sjálfvirk störf.
TNTÆ2GA05CR
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
virkni PIC örgjörva.
tengingu örgjörva við umhverfið.
stýrirofum ýmisskonar.
skynjurum af ýmsum gerðum.
servómótorum og steppermótorum.
algengum forritunarmálum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
forrita einfaldar skipanir í örgjörva.
stilla upp vélbúnaði s.s. mótorum og færiböndum.
láta vélbúnað vinna með forritaðri stýringu.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
teikna flæðirit af virkni hugbúnaðar.
setja upp og tengja einfaldan vélbúnað.
forrita og stilla upp einföldum vélbúnaði og láta hugbúnað stjórna.
Kennsla verkefnastýrð að mestu, námsmat er símat með tvo til þrjá lykilmatsþætti og leiðsagnarmat.