Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1478690297.09

    Rafeindavélfræði II (Mekatronik)
    MEKA3RE05(BR)
    1
    Rafeindavélfræði
    Rafeindavélfræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    BR
    Nemendur læra um virkni og notkun ýmissa skynjara og mótora sem tengjast tölvustýringum. Þeir læra að tengja saman ólíka íhluti, skynjara og drif. Þeir læra um tengimáta og breytingu gagna milli mismunandi kerfa. Aðferðir við umbreytingu stafrænna gagna yfir í analog og öfugt. Nemendur vinna flóknari verkefni en í undanfara og takast á við erfiðari forritun fyrir PIC örgjörva með ýmist Assembler, Basic eða C – C#.
    MEKA2RE05AR
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • virkni örgjörva eins og í PIC rásum.
    • virkni ýmissa skynjara.
    • virkni ýmissa drifa.
    • Solid state relay.
    • samtengingu milli ólíkra kerfa.
    • virkni LCD smáskjáa.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • forrita flóknari skipanir í örgjörva.
    • stilla upp vélbúnaði s.s. mótorum og færiböndum.
    • vinna með riðstraums og jafnstraumsmótora.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta hannað vélrænt kerfi með nokkrum skynjurum og nokkrum mótorum.
    • geta forritað kerfið og látið það virka.
    • geta hannað brú milli mismunandi kerfa.
    Kennsla erverkefnastýrð að mestu, námsmat er símat með tvo til þrjá lykilmatsþætti og leiðsagnarmat.