Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1478691360.61

    Nettækni og miðlun I
    NETM2RE05(AR)
    1
    Nettækni og miðlun
    Nettækni og miðlun
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    AR
    Þessi áfangi er beint framhald TNTÆ2GA04DR. Þessi áfangi fjallar um nánari uppbyggingu og virkni staðarneta (LAN) , víðneta (WAN) og rauntímaneta (CANopen) með uppsetningar og þjónustu í huga. Farið er nákvæmlega í OSI-módelið og unnin verkefni með hjálp ýmissa netgreiningaforrita ásamt því að kennd og æfð er sú tækni sem er notuð við bilanaleit á staðar- og víðnetum. Æfðar eru uppsetningar á netbúnaði, netkortum, kapallögnum, svissum og beinum og hvernig villur í uppsetningum lýsa sér ásamt lausn þeirra með hjálp netgreiningaforrita. Í seinasta hluta áfangs er farið í CANopen, bæði uppsetningu og virkni. Með hjálp CAN-analyser eru skipanir CAN-netsins prófaðar. Í lok þessa áfanga þekkja nemendur uppbyggingu og virkni þessara neta, ásamt því að kunna skil á þeim búnaði sem notaður er við bilanaleit á netum og helstu aðferðum við bilanaleit.
    TNTÆ2GA04DR
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • LAN-netum og WAN-netum.
    • CAN-rauntímaneti.
    • forritum til greiningar á netumferð.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • greina netkerfi með þar til gerðum verkfærum.
    • setja upp netbúnað með kortum, lögnum, svissum og beinum.
    • setja upp einfalt CAN-netkerfi.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • þróa og setja upp lítið staðarkerfi (LAN).
    • setja upp WAN-kerfi.
    • þróa og setja upp CANopen netkerfi.
    • beita forritum eins og Wireshark til bilanagreiningar.
    Kennsla er verkefnastýrð að mestu, námsmat er símat með tvo til þrjá lykilmatsþætti og leiðsagnarmat.