Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1478691628.43

    Nettækni og miðlun II
    NETM3RE05(BR)
    1
    Nettækni og miðlun
    Nettækni og miðlun
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    BR
    Þessi áfangi fjallar um miðlægan tölvubúnað í netkerfum fyrirtækja. Nemendur læra um uppbyggingu og virkni miðlægs vélbúnaðar og netstýrikerfa. Nemendur læra um algengustu diskakerfi netþjóna ásamt því hvernig ýmsir hlutar netþjóna eru tvöfaldir og jafnvel þrefaldir til að tryggja stöðuga vinnslu þrátt fyrir einstakar bilanir. Farið er í öryggisafritun gagna og þau kerfi sem eru notuð til að tryggja örugga varðveislu afritanna. Nemendur kynnast stærri gagnageymslum ásamt því að heimsækja stór gagnaver. Í lok þessa áfanga þekkja nemendur uppbyggingu og virkni miðlægs búnaðar og hvernig farið er að því að tryggja að netþjónusturnar haldist í gangi þrátt fyrir bilanir, auk þess hvernig öryggi gagnanna og afrita sé best fyrir komið.
    NETM2RE05AR
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • miðlægum tölvubúnaði fyrirtækja.
    • netkerfum og uppbygging þeirra.
    • algengustu diskakerfum tölvukerfa.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • setja upp einfalt netstýrikerfi.
    • setja upp öryggisafritun.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • áætla stærð netkerfis fyrir lítil fyrirtæki.
    • hanna netstýrikerfi, server og net fyrir smærri fyrirtæki.
    Kennsla er verkefnastýrð að mestu, námsmat er símat með tvo til þrjá lykilmatsþætti og leiðsagnarmat.