Kennd er uppbygging á mismunandi videokerfum frá hefðbundnu sjónvarpi til HDTV. Forsendur fyrir upplausn í dreifikerfi og hvernig upplausnarþörf er reiknuð og yfirfærð yfir í bandbreidd. Farið er í muninn á fléttaðri (interlaced) skönnun og heildstæðri skönnun (progressive) og flutningsleiðir og flutningskerfi.
Nemendur læra um þjöppun video- og hljóðmerkis og dreifingu þess með stafrænni mótun, hvort sem er um þráð eða í lofti. Nemendur læra einnig um MPEG-þjöppunarstaðlana og DVB-T stafrænu sjónvarpsstaðlana. Námið skiptist í fyrirlestra, dæmatíma og verklegar mælingar.
Nemendur eiga að kunna skil á dreifingu hljóðmerkis um netið. Nemendur eiga að þekkja LCD skjátæknina, vinni við bilanaleit í LCD skjáum.
NETM3RE05BR
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
dreifikerfum sjónvarps og útvarps.
helstu þjöppunarstöðlum hjá miðlum.
uppbyggingu LED skjáa.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
mæla sendistyrk frá sjónvarps og útvarpssendum.
greina mismundandi merki með loftnetsmæli.
bilanagreina LCD skjái.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
mæla hlut stafræns merkis í loftnetskerfum.
stilla dreifikerfi af með hliðsjón af kröfum um styrk merkis.
stilla móttökudiska og setja upp viðeigandi búnað til móttöku.
gera bilanagreiningu á flóknari rafeindabúnaði.
Áfanginn er sveinsprófsáfangi. Í lok annar leggur sveinsprófsnefnd fram próf sem byggir á námi annarinnar og metur hvort nemandi hafi þá hæfni og leikni sem tiltekin er í hæfniviðmiðum. Kennsla er verkefnastýrð að mestu, námsmat er símat með tvo til þrjá lykilmatsþætti og leiðsagnarmat. Nemandi verður að standast sveinspróf til að áfanganum teljist lokið.