Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1478696547.46

    Rafeindabúnaður og mælingar II
    RABM3RE05(BR)
    1
    Rafeindarásir og mælingar
    Rafeindarásir og mælingar
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    BR
    Nemendur kynnast SM spennugjafatækni og bera saman við hefðbundna spennugjafa. Nemendur læra um virkni SM spennugjafa, gera bilanagreiningu í slíkum tækjum og öðlast skilning á virkni þeirra. Áhersla er lögð á verklega vinnu við mælingar og túlkun mælingarniðurstaðna. Kynntar eru nokkrar gerðir orkubreyta, magnara og sérhæfðra magnara. Vinna við greiningu og bilanaleit í línulegum spennugjöfum.
    RABM2RE05AR
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • virkni mismunandi SM rása.
    • virkni línulegra spennubreyta.
    • virkni orkubreyta.
    • virkni og mikilvægi jarðsambanda innan rafeindarása.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • mæla SM rásir og gera sér grein fyrir mögulegum orsakavöldum bilana.
    • mæla línulega spennugjafa og bilanagreina.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • greina tegund SM spennugjafa.
    • teikna blokkmynd af SM spennugjafa.
    • mæla SM spennugjafa með bilun í og greina orsök.
    • mæla línulega spennugjafa með bilun í og greina orsök.
    Kennsla er verkefnastýrð að mestu, námsmat er símat með tvo til þrjá lykilmatsþætti og leiðsagnarmat.