Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1478697025.36

    Rafeindabúnaður og mælingar III
    RABM3RE05(CR)
    2
    Rafeindarásir og mælingar
    Rafeindarásir og mælingar
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    CR
    Unnið er með almennan rafeindabúnað, fjarskiptatæki, SM-spennugjafa. Nemendur læra um virkni FM-sendinga og móttöku. Stereo og RDS tækni sem og mismunandi afmótun. Nemendur fara í bilanaleit í FM-tækni og SM-tækni. Nemendur fá yfirsýn yfir ýmsar rásir og tæki sem notuð eru t.d. um borð í skipum og á spítölum og yfir almenn heimilistæki. Nemendur læra um truflanir og áhrif þeirra á viðkvæman rafeindabúnað. Hvernig truflun getur haft áhrif á rafmagnsneti og í lofti og hvaða ráðstafanir eru mikilvægar í þessu samhengi og hvernig íhlutir gagnast. Áfanganum lýkur með sveinsprófi.
    RABM3RE05BR
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • virkni FM rása eða sambærilegra rása.
    • virkni stereorása og RDS í FM.
    • virkni mismunandi FM-skynjara.
    • virkni SM-spennugjafa.
    • notkun tækja og rása í ýmsu samhengi.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • bilanagreina SM-rásir.
    • bilanagreina FM-rásir.
    • teikna blokkmynd af FM-tæki.
    • teikna og skilgreina ýmsar gerðir SM-spennugjafa.
    • greina upptök truflana og áætla ráðstafanir.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • sýna öguð og rökrétt vinnubrögð við vinnu.
    • afla upplýsinga á interneti um íhluti og rásir.
    • greina tegund og uppbyggingu SM-rása.
    • bilanagreina SM-rásir.
    • greina rafeindarásir upp í blokkmyndir og áætla virkni út frá teikningu.
    • bilanagreina og gera við rafeindabúnað.
    Áfanginn er sveinsprófsáfangi. Í lok annar leggur sveinsprófsnefnd fram próf sem byggir á námi annarinnar og metur hvort nemandi hafi þá hæfni og leikni sem tiltekin er í hæfniviðmiðum. Kennsla er verkefnastýrð að mestu, námsmat er símat með tvo til þrjá lykilmatsþætti og leiðsagnarmat. Nemandi verður að standast sveinspróf til að áfanganum teljist lokið.