Nemendur læra grundvallaratriði í C forritun og hvernig hægt er að nota hana til að forrita stýriörgjörva (svo sem PIC og Arduino). Að síðustu setja nemendur upp þróunarkerfi fyrir C og læra á uppbyggingu þess. Í framhaldi af þessu læra nemendur undirstöðu í C, læra að nota einfaldar forlykkjur og að setja upp einfalda skipanalínu. Nemendur vinna síðan einföld forritunarverkefni með forritun stýriörgjörva í huga.
Í lok þessa áfanga eru nemendur færir um að skrifa einföld C-forrit fyrir stýriörgjörva þar sem stýriörgjörvinn stýrir virkni einfaldra tækja.
TNTÆ2GA05DR
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
samþættingu véla og tölva.
C forritunarmáli.
grunnskipunum í C forritun.
notkun flæðirita.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
forrita einfaldar skipanir í C.
setja upp flæðirit.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
setja upp flæðirit fyrir forrit.
skrifa forrit eftir flæðiriti.
skrifa C-stýriforrit fyrir einföld tæki með stýriörgjörva.
Kennsla er verkefnastýrð að mestu, námsmat er símat með tvo til þrjá lykilmatsþætti og leiðsagnarmat.