Þessi áfangi er í beinu framhaldi af STTÆ2RE05AR og í honum er farið dýpra í C-forritun auk þess sem nemendur kynnast C++. Farið er í fylki og föll ásamt því að fjallað er um flóknari gagnatög þ.e klasa sem er grunnur að hlutbundinni forritun (C++). Öll forritun í þessum áfanga er miðuð við stýriörgjörva forritun (embedded programming).
Í lok þessa áfanga eru nemendur færir um að takast á við stór stýriforrit í næsta áfanga, þar sem nemendur þurfa að hanna og smíða stjórntölvu fyrir iðnaðarumhverfi ásamt því að skrifa stýriforritið fyrir stýriörgjörvann (500 til 800 línur í C).
STTÆ2RE05AR
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
virkni forrita og samskiptaforrita og vélbúnaða.
fylkjum og föllum í C++.
samskiptum tölva og vélbúnaðar s.s. drifa og skynjara.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
forrita í C og nýta sér grunn skipanir og föll
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
þróa forrit þar sem þekking á föllum og fylkjum er notuð til að stýra vélbúnaði og nota svörun skynjara til að ákvarða viðbrögð.
Kennsla er verkefnastýrð að mestu, námsmat er símat með tvo til þrjá lykilmatsþætti og leiðsagnarmat.