Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1478701209.66

    Stýritækni og forritun III
    STTÆ3RE05(CR)
    2
    Stýritækni og forritun
    Stýritækni og forritun
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    CR
    Nemendur fá tilsögn og þjálfun í skipulögðum vinnubrögðum við úrlausn stærri/flóknari verkefna. Nemendur fá viðamikið verkefni sem feslt í að skrifa stýriforrit fyrir stjórntölvu fyrir iðnaðarvélbúnað svo sem vörulyftur, færibönd og flokkara. Þessi áfangi er unnin samhliða sveinsprófsáfanga í Mekatronik. Sveinsprófsverkefnið felur, til viðbótar við forritunina, í sér smíði stjórntölvunnar auk nauðsynlegs vélbúnaðar og gerð ýtarlegrar lýsingar á tækinu. (C-forritið er frá 500 upp í 800 línur). Í lok þessa áfanga hafa nemendur öðlast færni til að fást við frumhugmynd, hönnunar- og forritunarúrvinnslu í stýringum og verkefni sem spanna bæði forritun í hefðbundnu tölvuumhverfi (PC) og tengingu við forritanlegar stýrirásir (embedded programming) ásamt því að smíða vél- og rafeindabúnaðinn. Áfanganum lýkur með sveinsprófi.
    STTÆ2RE05AR
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • forritun á framleiðslulínum.
    • margskonar skynjurum og vélbúnaði.
    • virkni vélarama og færibanda.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • forrita framleiðslulínur.
    • setja upp analogskynjara.
    • setja upp digitalskynjara.
    • tengja skynjara og drif við tölvu.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • þróa vinnslulínu með völdum skynjurum og drifum.
    • setja upp flóknari framleiðslulínur.
    • forrita framleiðslulínur.
    Áfanginn er sveinsprófsáfangi. Í lok annar leggur sveinsprófsnefnd fram próf sem byggir á námi annarinnar og metur hvort nemandi hafi þá hæfni og leikni sem tiltekin er í hæfniviðmiðum.