Nemendinn fær þjálfun í lestri og gerð byggingateikninga með áherslu á timburhús og þakvirki. Fjallað er um almenna byggingauppdrætti en samhliða koma einnig burðarvirkisuppdrættir þar sem meðal annars er komið inn á ýmiskonar álag á byggingar. Fjallað er um algengustu útfærslur burðarvirkja úr tré, byggingatæknilegar lausnir, hönnunarforsendur og verklýsingar með tilliti til efniskrafna og einangrunar. Nemendinn kynnist mátkerfi fyrir byggingariðnaðinn og fær þjálfun í gerð efnislista á grundvelli hönnunargagna. Áfanginn er ætlaður húsasmiðum og byggist á verkefnavinnu með leiðsögn kennara.
GRUN1FF04
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
burðarvirki timburhúsa
margskonar álagi sem byggingar verða fyrir
smíðisfestingum sem notaðar eru við timburhúsagerð
klæðningum veggja og þaka
mikilvægi loftræstingar byggingarhluta
einangrun byggingarhluta
rakavarnarlagi og mikilvægi þess
notkun vinnuteikninga á byggingastað
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota tölvur til teikninga
teikna burðarvirki timburhúsa eftir verklýsingum og fyrirmælum
útbúa sérmyndir, deili og snið
vinna með mismunandi mælikvarða
útbúa teikningar til prentunar og prenta út nothæfar vinnuteikningar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja uppbyggingu byggingateikninga
teikna einfaldar burðarvirkisteikningar í tölvu
útbúa vinnuteikningar eftir öðrum teikningum
vinna eftir teikningum á byggingavinnusstað
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.