Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1481107037.74

    Franska 4
    FRAN2DD05
    23
    franska
    Franska 4
    í vinnslu
    2
    5
    Unnið er sem fyrr með lesskilning, tal, hlustun og ritun, nemendur vinna með ýmis þemu tengd frönskumælandi löndum. Þeir þjálfast í meira krefjandi orðaforða og tileinka sér ný og flóknari málfræðiatriði.
    FRAN1CC05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • meiri og flóknari orðaforða en áður
    • góðum framburði, áherslum og hljómfalli tungumálsins
    • meginatriðum franskrar málfræði
    • menningu frönskumælandi landa
    • taka þátt í samræðum um ýmis málefni líðandi stundar og tjá skoðun sína, aflað sér munnlegra upplýsinga og svara spurningum um hversdagsleg málefni
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja talað mál, þar sem talað er um ýmis málefni
    • taka þátt í samræðum um ýmis málefni líðandi stundar og tjá skoðun sína, aflað sér munnlegra upplýsinga og svara spurningum um hversdagsleg málefn
    • skilja texta af ýmsum gerðum, eins og t.d. smásögur og skáldsögur sem sérstaklega eru samdar fyrir nemendur (léttlestrarbækur). Einnig að geta lesið sér til gagns blaðagreinar og ýmsar upplýsingar eða leiðbeiningar
    • skrifa lengri texta en áður, t.d. bréf, útdrætti úr bókum eða kvikmyndum, stutta leikþætti og myndatexta
    • skrifa lengri texta en áður, t.d. bréf, útdrætti úr bókum eða kvikmyndum, stutta leikþætti og myndatexta
    • vinna sjálfstætt og með öðrum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tileinka sér innihald texta og skilja það sem sagt er
    • tjá sig um það sem hann hefur lesið eða heyrt og notað til þess flóknari orðaforða en áður, eins og t.d. ýmis orðatiltæki
    • túlka og leggja mat á aðstæður sem upp koma
    • skrifa lengri og flóknari texta en áður
    Skriflegt lokapróf er í áfanganum. Hluti af lokaeinkunn er annareinkunn. Inn í annareinkunn reiknast ýmis verkefni, hlutapróf, munnleg próf og hlustunarpróf sem tekin eru jafnt yfir önnina. Allir færniþættir eru metnir, þ.e. tal, hlustun, ritun og lesskilningur