Nemendur fá þekkingu á framleiðslu og vinnslu málma þar sem Fe er uppistaðan. Áhrif kolefnis á Fe-málma. Fjallað er um aðra málma og málmblöndur eins og silfur, eir, látún og fleiri málma. Þá er fjallað um framleiðslu og vinnslu álafurða og legumálma. Fjallað er um suðuhæfni, tæringaþol, tæringavarnir tog- og brotþol málma auk framleiðslu og vinnslu efna úr jarðolíum.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
skilgreiningu á járni, stáli, járnsteypu, ryðfríu stáli, áli og örum málmum
framleiðslu og vinnslu stáls
helstu íblöndunarefnum stáls
herslu og afdrátt á stáli
mismunandi vinnsluhæfni
kostum og ókostum álmelma og ryðfrís stáls
suðuhæfni og hitameðferð
helstu tæringavandamálum málma og vörnum við þeim
álagsprófunum eins og sliti og brotþoli
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
meta hvernig málma er best að nota í mismunandi verkefni
segja til um herslumöguleika stáls
meta hvort er hagkvæmara að steypa eða smíða hluti úr stáli
sjá út mismunandi aðferðir til að álagsprófa málma
greina á milli mismunandi málma og málmblenda
meta tæringarhættu málma
velja suðuaðferðir og hitameðferðir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
flokka helstu málma og málmblendi eftir tegundun verklega