Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1482923110.66

    Raflagnir 2
    RAFL1GA03(BR)
    2
    Raflagnir
    Raflagnir
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    BR
    Farið er í öryggismál og hvernig á að haga sér við hinar ýmsu aðstæður. Nemendur læra hvernig reglur og staðlar koma við sögu í störfum rafiðnaðarmanna og átta sig á mikilvægi þeirra. Farið verður í mismunandi gerðir rofa, lagnir íbúðarhúsa og greinatöflur tengdar, jafnframt því sem nemendur leggja lagnir inni í veggjum. Helstu heimilistæki eru kynnt og orkunotkun þeirra skoðuð. Nemendur læra að velja leiðara miðað við orkunotkun og velja varbúnað við hæfi. Nemendur kynnast raflögnum fyrir mismunandi straumþol, rafmagnstöflur og töflubúnað.
    RAFL1GA03AR
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • slysahættum í vinnu við rafmagn á vinnustöðum.
    • utanaðkomandi aðstæðum sem hafa áhrif á raflagnir eins og raka og varma.
    • öryggis- og reglugerðarákvæðum er varða raflagnir og varnaraðferðir.
    • helstu heimilistækjum og straumþörf þeirra.
    • mikilvægi fagmannlegra vinnubragða.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • tengja ýmsa rofa og búnað sem tilheyra minni veitum.
    • forðast hættur bæði í vinnu við rafmagn og umgengni á vinnustöðum.
    • draga leiðara í rör.
    • skipleggja starf sitt og beita faglegum vinnubrögðum.
    • tengja helstu rofa og tengla í minni veitum.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • gera sér grein fyrir hættum sem leynast við vinnu með rafmagn og verkfæri.
    • gera sér grein fyrir orkunotkun í heimahúsum og velja búnað í samræmi við hana.
    • velja raflagnaefni í minni veitur.
    • leggja raflagnir og tengja í minni veitur.
    Áfanginn byggir á verkefnastýrðu námi. Í símati eru að lágmarki 5 matsþættir. Lágmarkslokaeinkunn er 5.