Í áfanganum vinna nemendur textílverkefni upp úr eldri textíl sem má blanda með nýju efni. Vinnan verður að hluta til unnin í samstarfi við góðgerðarfélag. Kennari leggur inn þrjú til fjögur verkefni í hverri viku og nemendur skoða heima og velja úr og koma undirbúnir í tíma. Nemendur fara í vettvangsferðir og kynnast fatasöfnun og að endurvinna sé gott fyrir umhverfið og fjárhag. Nemendur sýna verkefni sín og fara í vettvangsferðir
FATA1SH05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hugmyndavinnu
undirbúningi verkefna
notkun verklýsinga
einfaldri sníðagerð
störfum góðgerðafélags
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skrá hugmyndir
vinna eftir verklýsingu
skrá verklýsingu
skilja samband milli hugmyndar, hráefnis, tækni, aðferða og niðurstöðu
skilja einfalda sníðagerð
skilja út á hvað endurvinnsla gengur
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna verkefni frá hugmynd að tilbúnu verki
til að finna notuðu efni nýtt hlutverk
Námsmat í áfanganum getur meðal annars falið í sér mat á mætingu, virkni, vinnubrögðum, frágangi, skráningu verkefna í vinnubók, hugmyndum, hönnun og verkefnum