Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1484835932.62

    Algebra og rúmfræði
    STÆR1AR05
    57
    stærðfræði
    algebra, rúmfræði
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í þessum áfanga er lögð áhersla á að nemendur nái góðum tökum á reikningi með almennum brotum, geti leyst fyrsta stigs jöfnur bæði uppsettar og óuppsettar. Nemendur eiga að geta nýtt sér reglur í flatar- og rúmmálsreikningi til lausnar verkefna. Þá er farið í einslögun, kvarða, hornafræði og fyrstu hornafallareglurnar æfðar. Einnig er farið í frumtöluþáttun , hnitakerfið, jöfnu beinnar línu, og Pýþagórasarregluna. Lögð er áhersla á fagleg vinnubrögð og góða framsetningu lausna.
    Hæfnieinkunn C eða C+ við lok grunnskóla, eða staðist áfangann STÆR1UB05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • reikningi með almennum brotum
    • lausn á  jöfnum af fyrsta stigi
    • leysa sama tvær jöfnur
    • hlutfallareikningi
    • línulegum föllum, hallatölu, skurðpunktum við ása hnitakerfisins, skurðpunktum lína
    • tölugildi talna
    • þáttun samsettra talna í frumtölur
    • flatar- og rúmmálsreikningum
    • reglum um hornasummur, þríhyrninga, ferhyrninga, beinnar línu
    • einslögun
    • hornafallareikningi í rétthyrndum þríhyrningi, það er notkun á sin(x), cos(x) og tan(x)
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna með almenn brot
    • leysa  jöfnur og jöfnuhneppi
    • setja upp dæmi og nota hlutfallareikning til lausnar
    • reikna út hallatölu línu, jöfnu línu og finna skurðpunkta við ása hnitakerfisins og skurðpunkta tveggja lína
    • finna jöfnur lína sem eru samsíða gefinni línu eða hornréttar á hana
    • þátta samsettar tölur í frumtölur
    • nota flatar- og rúmmálsreikninga, geta nýtt formúlur til lausnar
    • reikna út stærð horna í marghyrningum, horn sem myndast milli lína
    • nota hornafallareikning til að reikna út stærð horna og lengdir hliða
    • setja fram og rökstyðja niðurstöður sínar með skýrum hætti
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • fást við stærðfræðilega viðfangsefni daglegs lífs
    • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og geta unnið með þau
    • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra á viðeigandi hátt
    • greina og hagnýta upplýsingar á sviði stærðfræði sem birtast m.a. í fjölmiðlum
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá