Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1485168832.74

    Sálfræði daglegs lífs
    SÁLF1SD05
    6
    sálfræði
    sálfræði daglegs lífs
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum læra nemendur aðferðir sálfræðinnar til þess að takast á við eigin líðan. Fjallað verður um hvernig hægt er að hafa áhrif á eigin hugsanir og tengsl þeirra við líðan. Nemendum eru kenndar leiðir til sjálfstyrkingar og hvernig hægt er að takast á við kvíða og streitu. Nemendur gera verkefni í anda jákvæðrar sálfræði, þjálfast í núvitundaræfingum og slökun. Einnig verður komið inn á samskipti og samskiptahæfni
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hvernig hugsanir hafa áhrif á liðan og hegðun
    • hvernig þættir í eigin hegðun og umhverfi hafa áhrif á líðan (hugsanaskekkjur)
    • mismunandi leiðir til samskipta og að leysa ágreining á uppbyggilegan hátt.
    • aðferðir til þess að koma í veg fyrir streitu, núvitundaræfingar, sálfræðilegar aðferðir
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • greina mismunandi hugsanir og tilfinningar
    • öðlast leikni í að nota ólíkar leiðir til að hafa áhrif á eigin líðan
    • meta áhrif samskipta á aðstæður og líðan
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • hafa áhrif á eigin líðan með sálfræðilegum aðferðum
    • leggja einfalt mat á eigin líðan út frá sálfræðilegum leiðum
    • vera í jákvæðum samskiptum í einkalífi og í starfi
    Leiðsagnamat