Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1486129053.37

    Félagsfærni einstaklinga
    FÉLF1FE03(ST)
    4
    félagsfærni
    Félagsfærniþjálfun einstaklinga
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    ST
    Megináhersla er á að efla almenna félagsfærni í skólasamfélaginu og að styrkja nemandann sem einstakling og námsmann. Jafnframt er lögð áhersla á að efla sjálfsþekkingu, sjálfstraust og sjálfsvirðingu nemandans. Áfanginn er einstaklingsmiðaður og séráherslur því mismunandi eftir hverjum og einum.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • eigin styrkleikum, hegðun og framkomu
    • eigin tilfinningum, líðan og gengi
    • eigin færni og verklagi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • tjá sig um eigin líðan
    • eiga í samskiptum við aðra
    • fara eftir almennum samskiptareglum
    • meta eigin framgang
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nýta eigin styrkleika og færni í daglegu lífi og í samskiptum almennt
    • styrkja eigin sjálfsmynd og taka ábyrgð á eigin líðan
    • bæta eigin vinnubrögð og samstarf við aðra
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.