Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1486129390.21

    Verktækni grunnnáms 1
    VGRT1GA03(AR)
    1
    Verktækni grunnnáms
    Verktækni grunnnáms
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    AR
    Nemendur læra grunnatriði við smíði rafeindarása ogfá upplýsingar um efnisfræði íhluta rafeindatækninnar og virkni þeirra. Nemendur læra að beita helstu verkfærum eins og lóðbolta, tinsugu, bítara, töngum, klippum, skrúfjárnum og skiptilyklum. Nemendur smíða einfaldar rafeindarásir og fá þjálfun í beitingu verkfæra. Nemendur gera mælingar á rásinni til að styrkja hæfni til mælinga á spennu, viðnámi og straum í tengslum við rafmagnsfræði.
    Forkröfur eru að nemandi hafi lokið grunnskóla með einkunnina C í öllum greinum nema stærðfræði þar sem krafan er B.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • virkni lóðbolta, lóðstöðva og mikilvægi hitastigs.
    • efnisfræði íhluta.
    • leiðni mismunandi efna.
    • myndun tæringar og spennu milli efna.
    • hvernig meðhöndla skal verkfæri.
    • hvernig meðhöndla skal fjölsviðsmæla og sveiflusjáa.
    • helstu gerðum prentplatna.
    • helstu atriðum varðandi öryggi.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • stilla og hreinsa lóðbolta.
    • lóða rafeindarás án kaldra lóðninga.
    • nota tinsugu eða tinhreinsivír.
    • bora með fjölhraða borvél.
    • beygja og fella íhluti í prent svo vel fari og setja í prentplötu.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • setja upp einfalda rafeindarás á blaði.
    • snúa rásinni yfir á veró-borð.
    • rjúfa og tengja þar sem við á.
    • lóða íhluti án kaldra lóðninga.
    • lóða íhluti með hámarks leiðni.
    • losa íhluti upp án þess að skemma þá.
    • prófa rásina með fjölsviðsmæli.
    • bilanagreina ef rásin virkar ekki.
    Áfanginn byggir á verkefnastýrðu námi. Í símati eru að lágmarki 5 matsþættir. Lágmarkslokaeinkunn er 5.