Nemendur læra að beita rásahermiforritum til að teikna og prófa einfaldar rafeindarásir. Nemendur gera jafnframt allar mælingar í slíkum forritum, smíða rás á prentplötu og setja rásirnar saman. Síðan staðfesta þeir virkni rásarinnar.
VGRT2GA03BR
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
virkni rásahermiforrita.
virkni helstu íhluta.
hvernig prentrásir eru ætaðar.
forritum til að teikna prentrásir.
forritum til að teikna rafeindarásir.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna með og prófa rásir í rásahermum.
snúa skematískum teikningum yfir á prent.
mæla og prófa rásir bæði í rásahermi og raunrás.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
teikna rafeindarás í rásahermi.
láta rásina virka í rásahermi.
mæla spennur, strauma og viðnám í rásahermi.
hanna prent út frá rásateikningu.
smíða rás með ætingu.
prófa og staðfesta virkni í raunrás.
Áfanginn byggir á verkefnastýrðu námi. Í símati eru að lágmarki 5 matsþættir. Lágmarkslokaeinkunn er 5.