Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1486132822.6

    Rafeindatækni 2
    REIT2GA04(BR)
    2
    Rafeindatækni
    Rafeindatækni
    Samþykkt af skóla
    2
    4
    BR
    Áfanginn er framhald af RTÆK2GA04AR og erhér haldið áfram að fjalla um bjt transistora. Þeir eru nú skoðaðir sem magnarar í mismunandi tengingum. Einnig er farið í aðra hálfleiðaraíhluti svo sem díak triak og týristor og virkni þeirra og notkun skoðuð. Nemendur kynnast einnig FET - transistorum og aðgerðamögnurum í þessum áfanga, helstu útreikningum og notkunarmöguleikum þeirra. Nemendur gera mælingar bæði með mælitækjum og hermiforriti.
    REIT2GA04AR
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hvernig hægt er að nota BJT transistora sem magnara og geta reiknað út helstu stærðir í þeim og framkvæmt mælingar.
    • hvernig Diak, Triak og Tyristor virka, tákn og helstu notkunarmöguleika.
    • táknum og DC-reikningum varðandi FET transistora.
    • tákni, helstu virkni og notkunarmöguleikum aðgerðarmagnara.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • framkvæma alla helstu útreikninga varðandi BJT transistora bæði AC og DC.
    • framkvæma DC-útreikninga í rásum með FET-transistorum.
    • framkvæma mælingar á rásum með hinum ýsmu hálfleiðaraíhlutum.
    • reikna út mögnun í aðgerðamagnararásum.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tengja eftir teikningu allar helstu gerðir magnara með BJT-transistorum og framkvæma á þeim útreikninga og mælingar bæði hvað varðar AC og DC.
    • tengja eftir teikningu magnara með FET-transistorum og gera á honum DC-útreikninga og mælingar.
    • nýta sér hermiforrit við gerð mælinga og setja niðurstöður mælinga fram í skýrslu.
    • geta tengt og framkvæmt mælingar á magnararás með aðgerðarmagnara.
    • geta tengt eftir teikningu og framkævmt mælingar á rásum með öðrum hálfleiðaraíhlutum svo sem diak, triak og týristor.
    Áfanginn byggir á verkefnastýrðu námi. Í símati eru að lágmarki 5 matsþættir. Lágmarkslokaeinkunn er 5.