Í áfanganum er unnið að því að nemendur séu vel í stakk búnir til að marka sér framtíð og bera ábyrgð á þeirri leið sem þeir kjósa eftir að stúdentsprófi lýkur. Kenndar eru leiðir til að efla sjálfsþekkingu og að taka ákvarðanir á yfirvegaðan hátt. Áhersla er lögð á að nemendur séu meðvitaðir um þá óþrjótandi möguleika sem í boði eru í framhaldsnámi hérlendis og erlendis og þekki leiðir til að afla upplýsinga á þessu sviði.
Einnig verður fjallað um samfélagslega ábyrgð og hvað felst í því. Nemendur kynna sér sjálfboðaliðastörf sem unnin eru á Íslandi og erlendis og fá tækifæri til að vinna í þágu góðgerðastarfs og láta gott af sér leiða.
LÍFS3LD01
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
kenningu John Hollands um áhugasvið
leiðum til að efla styrkleika og vinna með veikar hliðar
gerð náms- og starfsferilsskráa
framboði á framhaldsnámi hérlendis og erlendis og leiðum til að afla upplýsinga um nám og störf
því hvað felst í sjálfboðastörfum og mikilvægi þeirra fyrir samfélagið
mikilvægi þess að vera virkur og taka aftstöðu
mikilvægi þess að hafa áhrif og geta beitt sér í samfélaginu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
finna upplýsingar um nám og störf og átta sig á kröfum sem gerðar eru til einstaklinga í mismunandi námi og störfum
skoða ólík störf og starfsumhverfið sem þeim tengist
starfa með aðilum utan skólans að góðgerðarmálum
koma skoðunum sínum á framfæri, taka afstöðu og beita sér fyrir ákveðið málefni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
til að þróa náms- og starfsferil sinn á uppbyggilegan hátt
stýra fjármálum sínum með ábyrgum hætti
nýta styrkleika sína sem best
greina málefni sem bæta þarf í samfélaginu
vera ábyrgur í afstöðu sinni til samfélagslegra málefna
taka afstöðu og beita sér í þágu góðgerðarmála á uppbyggjandi hátt
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.