Í áfanganum dýpka nemendur þekkingu sína í verkefnavinnu faggreinar þar sem unnið er með efni og aðferðir. Nemendur þjálfast í notkun véla og verkfæra á verkstæðum og efla sjálfstæði sitt. Áhersla er lögð á mikilvægi þess að virða vinnureglur og öryggisatriði.
VSTÆ1HN03AT
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
sérhæfðari aðferðum og verklagi faggreinar.
hugtökum, aðferðum og mismunandi efnum sem tilheyra faggrein.
mikilvægi réttrar líkamsbeitingar, öryggisatriðum og vellíðan á vinnustað.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna með sérhæfðar aðferðir og verklag faggreinar.
nota verkfæri og vélar sem tilheyra faggrein.
greina milli mismunandi aðferða við úrlausn verkefna og beita viðeigandi aðferðum hverju sinni.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
velja aðferðir við hæfi og forgangsraða verkþáttum við úrlausn verkefna.
beita sérhæfðri þekkingu við ákvarðanatöku í verkefnavinnu.
sýna fram á siðferðisvitund með tilliti tilefnisnotkunar og höfundarréttar
sýna ábyrgð, sjálftraust og sjálfstæði í vinnubrögðum.